4.1.2009 | 22:51
Jólin búin
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2008 | 19:41
Hver borgar
Fréttir af mótmælum eru orðin aðal fréttir í fjölmiðlum en kæru landar þið sem kastið eggjum og brjótið rúður ætli þið að borga þrifnaðinn og skemmdirnar sjálf eða hver á að borga? Þetta kalla ég ekki kreppu. Það er allt í lagi að mótmæla en að skemma og ráðast á lögregluna fynnst mér ekki í lagi. Af hverju er enginn fjölmiðill þar sem eitthvað gott er að gerast? Það er td mikið af börnum sem eru í íþróttum eða skátum eða einhverju skemmtilegu. Ég skora á alla fjöðmiðla að snúa sér að því sem vel er gert:
Rúður brotnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.12.2008 | 17:49
Hvar voru fjölmiðlar?
Ég fór í bænagöngu á laugardaginn sem var mjög góð það var sungið niður allan Skólavörðustíginn og áfram alveg á Austurvöll. Þar töluðu margir bæði frá Þjóðkirkjunni og öðrum trúfélögum. Að þessu loknu rölti fólk heim á leið engum eggjum kastað í Alþingishúsið og engin skrílslæti. Ég horfði á fréttir um kvöldið og hvað var í fréttum jú mótmælafundur seinna um daginn nokkrir með læti en nóg til þess að FJÖLMIÐLAR sáu ástæðu til að fjalla um það. Er ekki komin tími til að horfa líka á það sem vel er gert.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)